Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Stóri bróðir

Forsíða bókarinnar

Stóri bróðir er saga um hefnd og réttlæti, um kærleika og missi, ofbeldi og gamlar syndir.

Svartklædd vera gengur í skrokk á manni við Rauðavatn og hverfur svo eins og vofa út í nóttina. Enginn veit hver árásarmaðurinn er eða hvað vakir fyrir honum. Stóri bróðir er hörkuspennandi glæpasaga sem heldur lesandanum föngnum frá upphafi til enda.

Emil Þorsteinsson, blaðamaður, telur árásina tengjast öðrum árásum í Reykjavík og að svartklædda veran sitji skipulega um fórnarlömb sín. Rannsókn Emils leiðir í ljós að árásarmaðurinn telur sig ganga erinda þeirra sem eiga um sárt að binda; hann vilji útdeila réttlæti fyrir þeirra hönd.

Stóri bróðir er spennandi og blóði drifin glæpasaga sem tekur óvæntar vendingar þegar minnst varir.