Strákurinn sem varð óvart kóngur

Forsíða kápu bókarinnar

Teiknimyndasaga þar sem koma við sögu töfrafuglar, drekar, gráðugir kóngar og fátækur piltur sem rís óvænt upp gegn ofurvaldi. Þetta er bók fyrir ævintýraþyrsta krakka.

Piltur nokkur í konungsríki elst upp við mikla fátækt. Kóngur er sjálfselskur og sinnir þegnum sínum illa. Þegar drengurinn auðnast fé deilir hann því með fólkinu í landinu. Það kann honum miklar þakkir fyrir. En hvað gerist þegar kóngur verður þess var að strákurinn er farinn að njóta hylli almennings og skipar hermönnum sínum að handtaka hann?