Straumhvörf

Forsíða bókarinnar

Fyrir fimmtíu árum kom hópur unglinga saman um helgi á Holy Island og myndaði náin tengsl. Síðan hefur hópurinn hist þar á fimm ára fresti til að fagna vináttunni og minnast vinarins sem drukknaði við fyrstu endurfundina.

Þegar einn úr hópnum finnst hengdur er lögreglan kölluð til. Rannsókn Veru Stanhope leiðir fljótlega í ljós ...

... að þessir gömlu vinir hafa ýmislegt að fela. Gætu löngu liðnir atburðir hafa leitt til morðs – bæði þá og núna?

Bækur breska verðlaunahöfundarins Ann Cleeves um Veru Stanhope njóta mikilla vinsælda, ekki síst eftir gerð velheppnaðra sjónvarpsþátta. Þetta er áttunda bókin um Veru sem kemur út á íslensku.