Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Svefngríman

  • Höfundur Örvar Smárason
Forsíða bókarinnar

Átta smásögur sem vega salt á mörkum þess hversdagslega og þess fáránlega. Síðasti kaffibollinn fyrir heimsendi, eðlilegur útlimamissir, úthverfablinda, gervigreindarvinátta, óráð, ímyndun, sambönd og tengslaleysi. Verk sem hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta.

Örvar Smárason er ljóðskáld, rithöfundur, tónskáld og tónlistarmaður. Svefngríman er fyrsta smá­sagnasafn hans en áður hafa komið út nóvellan Úfin, strokin og ljóðabókin Gamall þrjótur, nýir tímar. Smásagan Sprettur í safninu hlaut fyrstu verðlaun á Júlíönuhátíðinni.

„Sögurnar eru ferskar og framandi ... gífurlega frjór höfundur sem leikur sér að ímyndunaraflinu á einstakan máta.“ Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Morgunblaðinu ★★★★

„Æðisleg bók.“ Kristín Eiríksdóttir

„Svefngríman er unaðslega súrrealísk og grótesk og drepfyndin.“ Pedro Gunnlaugur Garcia

„Það er sérstaklega ferskur andblær í þessu efni, þessum sögum og þessum frásagnarstíl.“ Díana Sjöfn Jóhannsdóttir