Það sem við sjáum þegar við lokum augunum
Forfallinn safnari fær vídeóspólu með vandræðalegu efni í hendurnar. Sérvitur verðlaunahöfundur hefur haslað sér völl á samfélagsmiðlum undir dulnefninu Hjartakonan. Myndbandsgreinandi hjá Interpol er haldinn Tetris-fíkn og sendur í veikindaleyfi til Íslands. Dag einn fléttast líf þeirra saman á óvæntan hátt.