Ritsafn GE Svefnhjólið
Önnur skáldsaga höfundarins sem kom fyrst út árið 1990 og var tvímælalaust mikilvægt skref á ferli hans. Fljótlega var hún þýdd og gefin út á nokkrum tungumálum svo segja má að hún hafi rutt brautina fyrir ýmis verk sem hafa ratað víða um heim. Bókin hefur verið ófáanleg í meira en 30 ár, en kemur nú út sem hluti af heildarútgáfu á verkum Gyrðis.
Í Svefnhjólinu ber margt fyrir augu lesenda sem er bæði kunnuglegt og órætt, en líka dulafullt, ævintýralegt og sumpart ógnvekjandi. Hér segir frá ferðalagi ungs manns um Ísland, bæði ofanjarðar og neðan, og sögusviðið er lítið þorp, eilítið stærra kauptún og dálítil borg, en öll kennileiti verða á vissan hátt torkennileg þótt lesendur kannist væntanlega við þau. Sagan er skifuð af þeirri einstöku stílsnilld sem höfundur hafði þá þegar getið sér gott orð fyrir og fyrstur manna hlotið Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar, ári áður en bókin kom út.