Þagnarbindindi

Forsíða bókarinnar

Blaðamaðurinn Nora Sand er komin til Tælands. Þar ætlar hún að æfa kickbox og fá smá hvíld frá vandamálunum heima fyrir. En þá hefur ritstjórinn hennar samband og vill senda hana til smábæjar á Englandi þar sem lögreglumaður hefur verið hálshöggvinn á hrottafenginn hátt. Myndbandsupptaka hefur verið birt á netinu og fólk er skelfingu lostið.

En þegar Nora fer að rannsaka málið kemur í ljós að bæjarbúar eiga sér skuggalegt leyndarmál sem legið hefur í þagnargildi alltof lengi ...

Bækurnar um Noru Sand hafa slegið í gegn víða um heim. Þagnarbindindi er fjórða bókin um hana sem kemur út á íslensku. Hinar þrjár eru Stúlkurnar á Englandsferjunni, Kona bláa skáldsins og Nornadrengurinn.

Lone Theils var lengi fréttaritari dönsku blaðanna Politiken og Berlingske Tidende í London, en býr nú í Danmörku.

„Lone Theils skrifar eins og engill ... Ég elska Noru Sand-bækurnar, hraðann í frásögninni, plottin og kraftinn í þessari hrikalega spennandi bók.“ Femina

„Svakaleg spenna í lokin og við bíðum spennt eftir fimmtu bókinni um Noru Sand.“ –Søndag

„Lone Theils er algjörlega frábær í þessari nýju skáldsögu.“– Familiejournalen