Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Þingvellir í íslenskri myndlist

  • Ritstjórar Aðalsteinn Ingólfsson og Sverrir Kristinsson
Forsíða bókarinnar

Þingvellir eru hjartastaður þjóðarinnar. Þar eru fegurðin og sagan við hvert fótmál. Í þessari glæsilegu bók er ítarlegt yfirlit um íslenska myndlist tengda Þingvöllum og þróun hennar í tímans rás. Við gerð hennar hefur verið unnið mikið starf við söfnun, skráningu og ljósmyndun listaverka en myndir af 269 verkum eftir 104 listamenn eru í bókinni.

Með verkum sínum hafa myndlistarmenn kennt okkur að meta náttúrufegurð Þingvalla en þeir hafa líka gert sögu Þingvalla að viðfangsefni, dregið upp myndir af glæstri fortíð og jafnframt kafað í þögn og sársauka Drekkingarhyls. Í þessari bók er í fyrsta sinn gefið ítarlegt yfirlit um íslenska myndlist tengda Þingvöllum og hvernig hún hefur þróast í tímans rás. Við gerð hennar hefur verið unnið mikið starf við söfnun, skráningu og ljósmyndun listaverka sem fjalla um náttúru og sögu Þingvalla í fortíð og nútíð.

Myndir af 269 verkum eftir 104 listamenn eru í bókinni.