Þrennt sem er frábært við þig

Forsíða bókarinnar

Hallie á sér leyndarmál. Hún er ástfangin. En það er ást sem er ekki líkleg til að raungerast. Og vinir hennar ætla ekki að hjálpa henni því þeir vita að Hallie á ekki langt eftir ...

Flo er í klípu. Hún er mjög hrifin af Zander en hin ógurlega systir hans má ekki til þess hugsa að þau séu saman ...

Tasha stendur frammi fyrir vanda. Nýi kærastinn er áhættusækinn og hún óttast að það kunni að fara illa fyrir honum ...

Hallie leggur af stað í ferðalag. Líffæragjafi hefur fundist og hún mun fá ný lungu. En hver er hann?

Töfrandi ný skáldsaga um ástina, ástarsorg og nýtt upphaf ...

Enski verðlaunahöfundurinn Jill Mansell hefur selt meira en 13 milljónir eintaka af bókum sínum – og er óhætt að segja að hún sé einn allra vinsælasti höfundur ljúflestrarbóka í heiminum.

„Drottning hinna ljúfu og hrífandi ástarsagna.“ – Red Online

„Einn af mínum eftirlætishöfundum.“ – Katie Fforde

„Bækur Jill Mansell verða sífellt betri ... Skvísubækur sem vit er í fyrir fullorðna eins og þær gerast allra bestar.“– Good Housekeeping