Þrjár sögur

Forsíða kápu bókarinnar

Þrjár sögur, sem komu fyrst út árið 1877, eru meðal rómuðustu verka franska rithöfundarins Gustaves Flaubert. Sögurnar hverfast um margbreytileika mannlegra tilfinninga og beitir höfundur ólíkum frásagnaraðferðum eftir efni hverrar sögu.

Fyrsta sagan, „Einfalt hjarta“, segir frá Félicité, ómenntaðri vinnu­konu sem heldur fast í trú sína þrátt fyrir einmanaleika, sorg og missi.

Önnur sagan, „Goðsögnin um heilagan Júlían hinn gestrisna“, fjallar um örlög grimmlynds veiðimanns sem spáð er að muni myrða foreldra sína.

Í þriðju sögunni, „Heródías“, endurskapar Flaubert frásögn Biblíunnar af Salóme og Jóhannesi skírara.