Þúsund barna móðir

Forsíða kápu bókarinnar

Ísafold gekk í björg sjö ára gömul og dvaldi þar í sólarhring. Hún lifir í dag hæglátu lífi en þegar systir hennar óttast að mamma þeirra sé komin með ósæmilega ungan kærasta, hriktir í stoðum tilverunnar. Listilega fléttuð fjölskyldusaga úr dularfullum samtíma, þar sem sumt fólk fæðist undir berum himni á meðan öðrum er áskapað líf í klettunum.