Tímabundin - ástarsaga

Forsíða kápu bókarinnar

Árið er 2033. Ríkisstjórnin hyggst leggja fram umdeilt frumvarp um að leyfa ófrjósemisaðgerðir á börnum. Magnea er þingmaður í stjórnarandstöðu og staðráðin í að beita sér af alefli gegn málinu. Á sama tíma eru blikur á lofti í einkalífinu. Tómas, eiginmaður hennar, er spendýrafræðingur sem glímir við erfiða drauga fortíðar.

Smám saman þyngist undiraldan og uppgjör virðist óumflýjanlegt.

Tímabundin – ástarsaga er óvenjuleg saga úr náinni framtíð þar sem fléttað er saman örlögum nokkurra persóna sem eru skýrt dregnar. Um leið er brugðið upp ísmeygilegri mynd af þjóðfélagi sem er í senn kunnuglegt og ekki – og velt upp áleitnum spurningum um uppeldi, hugsjónir, forsjárhyggju – og hvort við höfum gengið til góðs.

Kristján Hrafn Guðmundsson sendi síðast frá sér ljóðsöguna Vöggudýrabæ (2023) sem vakti mikla athygli. Rétt eins og hún er Tímabundin – ástarsaga samin af skáldlegu innsæi, húmor og þekkingu.