Höfundur: Kristján Hrafn Guðmundsson

Tímabundin - ástarsaga

Árið er 2033. Ríkisstjórnin hyggst leggja fram umdeilt frumvarp um að leyfa ófrjósemisaðgerðir á börnum. Magnea er þingmaður í stjórnarandstöðu og staðráðin í að beita sér af alefli gegn málinu. Á sama tíma eru blikur á lofti í einkalífinu. Tómas, eiginmaður hennar, er spendýrafræðingur sem glímir við erfiða drauga fortíðar.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Vöggudýrabær Kristján Hrafn Guðmundsson Bjartur Vöggudýrabær er skáldleg umfjöllun um þær konur sem nauðbeygðar sendu afkvæmi sín á vöggustofur og þau börn sem þar voru vistuð framan af barnæskunni. Kristján Hrafn Guðmundsson yrkir hér af skáldlegu innsæi, húmor og þekkingu um hlutskipti móður sinnar og ömmu og bregður um leið birtu á þjóðfélag þessara tíma og tíðaranda.