Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Tríó lendir í ævintýrum

Forsíða bókarinnar

Hvolpurinn Tríó laumar sér óvænt inn í líf Stebba og Ásu og foreldra þeirra. Hann reynist mjög forvitinn en líka afar klókur. Fjölskyldan lendir í alls konar ævintýrum þegar Tríó ákveður að fara sínar leiðir, hvort sem það er að grafa sig inn í gæludýraverslun, fljúga með dróna eða fara í óvænta og óvenjulega sjóferð!

Bjarni Hafþór Helgason fer hér á kostum með húmor sínum og hlýju. Bókina prýða líflegar og fallegar myndir Freydísar Kristjánsdóttur sem krydda söguna enn frekar.

Það er sannkölluð hundaheppni fyrir unga lesendur að komast í þessa grípandi, spennandi og skemmtilegu sögu!