Trúnaðartraust

Forsíða kápu bókarinnar

Bresk kona drukknar í sundlaug við sumarbústað á vesturströnd Danmerkur. Var þetta slys – eða morð? Ef hún var myrt hver gat gerandinn verið? Afbrýðisöm systir hennar? Ósáttar vinkonur? Ástkær eiginmaður? Eða pabbi hennar sem átti í miklum fjárhagskröggum og þurfti á þeim fjármunum að halda sem líftrygging dóttur hans myndi færa honum?

Eða einhver allt annar? Danski blaðamaðurinn Nora Sand flækist inn í málið þegar það kemur til kasta dómstóla á Englandi. Þegar fleiri láta lífið verður hún sjálf skyndilega skotmark samviskulauss morðingja sem gerir allt til að bjarga eigin skinni.

Bækurnar um Noru Sand hafa slegið í gegn og hafa verið gefnar út í 16 löndum. Trúnaðarstraust er sjötta bókin um hana sem kemur út á íslensku. Hinar fimm eru Stúlkurnar á Englandsferjunni, Kona bláa skáldsins, Nornadrengurinn, Þagnarbindindi og Hinir ósýnilegu.

Lone Theils (f. 1971) var lengi fréttaritari danskra blaða í London en býr nú í Danmörku og sinnir ritstörfum.

„Það er hrein unun að lesa Lone Theils ... Maður vill í alvöru verja tíma með Noru Sand, því hún er svo svo frábær söguhetja.“ –Krummeskrummelurer

„Það er einstök skemmtun að vera í félagsskap Nöru Sand og Lone Theils.“ – Bokfidusen