Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Týndur

  • Höfundur Ragnheiður Gestsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Einari Starra Ólafssyni, sjö ára.

Einar Starri er 125 sentimetrar á hæð, grannvaxinn, bláeygur, með stuttklippt, dökkskollitað hár. Hann er klæddur í bláa úlpu, gráar buxur og svört gúmmístígvél. Hans hefur verið saknað síðan um klukkan fjögur í gær.

Hans hefur verið saknað síðan um klukkan fjögur í gær þegar hann fór frá Dragaskóla og gekk heim á leið, til austurs eftir Norðurdragi. Þau sem gætu hafa orðið hans vör eru beðin um að hafa samband við lögregluna.

Hvernig getur sjö ára barn horfið sporlaust á leiðinni heim úr skóla? Einhver hlýtur að vita hvað af honum varð. En hverjir segja satt og hverjir ljúga? Lögreglukonan Hanna María þarf á öllu sínu innsæi og reynslu að halda til að greina þar á milli. Tíminn er naumur, það er komið haust og næturnar orðnar kaldar.