Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Undirheimar

Forsíða kápu bókarinnar

Ester er 10 ára stelpa sem kemur ekki heim eitt kvöldið. Leit að henni stendur í sex daga. Þá birtist hún skyndilega og enginn trúir hvar hún hefur verið.

Hvar var Ester? Enginn veit, hvorki foreldrar né bestu vinkonur, Þórunn og Lára. En Ester veit það vel. Hún var hjá nýja vini sínum, drengnum sem býr í kirkjugarðinum við tjörnina, aleinn, neðanjarðar, undir grænni torfu. Hann hefur verið í undirheimum í 120 ár - síðan stóra húsið við Tjarnargötu brann til grunna -en getur ekki dáið alveg. Getur Ester hjálpað honum við að deyja alveg?

Helgi Jónsson hefur þýtt Kidda klaufa bækurnar undanfarin ár.