Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Upplausn

  • Höfundar Sara Blædel og Mads Peder Nordbo
  • Þýðandi Ingunn Snædal
Forsíða bókarinnar

Á fallegum sumardegi er Charlotte, móðir tveggja ungra barna, á leið úr ræktinni í skólann þar sem hún vinnur í friðsælum smábæ á eyjunni Fjóni. Nokkrum mínútum síðar er hún horfin sporlaust á þessari stuttu leið. Hér leggja saman krafta sína tveir höfundar í fremstu röð.

Þegar Charlotte hefur ekki skilað sér morguninn eftir verður fljótlega ljóst að glæpur hefur verið framinn. Á nokkrum dögum er öll eyjan undirlögð í rannsókninni og fólk fer að halda sig innan dyra af ótta við að verða næsta fórnarlamb. Lögregluforingjarnir Liam og Dea eru í kapphlaupi við tímann að reyna að leysa málið þar sem fólk deyr kvalafullum dauðdaga án þess að lögreglan fái við nokkuð ráðið.

Sara Blædel er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Dana og koma bækur hennar út víða um heim. Og bækur hennar fara ævinlega rakleitt efst á metsölulista á Íslandi.

Mads Peder Nordbo vakti mikla athygli með bók sinni Flúraða konan sem kom út á íslensku fyrir nokkrum árum.

„Spennandi glæpasaga sem flæðir vel, plottið er margþætt og persónugalleríið fjölskrúðugt. Ég mæli eindregið með Upplausn!“ Yrsa Sigurðardóttir