Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Uppruni

Forsíða bókarinnar

"Uppruni er bók um staðina þar sem ég á heima, þá sem lifa í minni mínu og þá sem ég hef skáldað. Um sumarið þar sem afi minn tróð ömmu svo um tær í dansi að litlu munaði að ég hefði aldrei fæðst. Sumarið sem Angela Merkel opnaði landamærin ..."

"Stórkostleg bók." Sunna Dís, Kiljan

"Uppruni er bók um staðina þar sem ég á heima, þá sem lifa í minni mínu og þá sem ég hef skáldað. Þetta er bók um tungumál, tunglsljós, æsku og fjölmörg sumur. Sumarið þar sem afi minn tróð ömmu svo um tær í dansi að litlu munaði að ég hefði aldrei fæðst. Sumarið þar sem ég næstum drukknaði. Sumarið sem Angela Merkel opnaði landamærin og líktist sumrinu þegar ég flúði um mörg landamæri til Þýskalands.

Uppruni er kveðja til ömmu með minnisglöpin. Á meðan ég safna minningum mínum er hún að glata sínum."

Saša Staniši er fæddur árið 1978 í Visegrad í Júgóslavíu - síðar Bosníu. Hann flúði til Þýskalands með foreldrum sínum 14 ára að aldri. Uppruna hefur verið tekið með kostum og kynjum og hlaut virtustu bókmenntaverðlaun Þýskalands 2019. "Stórkostleg bók." Sunna Dís, Kiljan