Úr húfu Guðs í þennan heim

Forsíða kápu bókarinnar

„Fyrsta minning mín skýr eftir öll þessi ár. Ég er farin að standa upprétt og er við endann á ógnarlöngum gangi sem liggur eftir endilöngum Austurbæjarskólanum. En nú ætla ég að leika mér að því að horfa yfir farinn veg, komin yfir á hinn endann.“ Hallveig Thorlacius segir ferðasögu ævi sinnar.

€

Þannig hefst þessi ferðasagna frá bernsku til elliára. Hallveig Thorlacius segir frá því helsta sem litað hefur líf hennar. Hvernig hún ólst upp í Austurbæjarskólanum þar til faðir hennar dó árið 1945. Hvernig himinninn hrundi og móðir hennar varð ekkja 33 ára með 5 ung börn. Hallveig segir frá bernskuárum sínum í Reykjavík eftirstríðsáranna og sumrunum í Skagafirði og Köldukinn. Hún stundaði háskólanám í Moskvu og aðeins tuttugu ára upplifði hún Rússland sem stóð á tímamótum. Hún segir frá daglegu lífi í Sovétríkjunum eins og það blasti við henni. Hún giftist Ragnari Arnalds sem þá var kominn á þing aðeins 24 ára. Hún segir frá lífi þeirra og dætranna Guðrúnar og Helgu. Hvernig hún lét drauminn um brúðuleikhús rætast. Úr öllu þessu varð spennandi ferðasaga um framandi lönd sem hér er sögð frá óvenjulegu sjónarhorni.