Úrval smásagna
Bókin inniheldur á fjórða tug smásagna Þórarins sem Kristján Þórður Hrafnsson hefur valið úr fyrri sagnasöfnum hans, átta talsins. Meðal sagnanna eru ýmsar sem telja má klassískar, svo sem Síðasta rannsóknaræfingin, Tilbury, Orðanna hljóðan og Íþróttabyltingin.
Kristján Þórður ritar jafnframt eftirmála þar sem hann gerir grein fyrir helstu höfundareinkennum Þórarins og setur sagnaheim hans í samhengi við önnur verk hans.
Þar segir meðal annars: „Húmor Þórarins Eldjárns ljær mannlífinu sjarma fjölbreytileikans, óreiðunnar og skringilegheitanna.... Og þess háttar húmor er einmitt eitt af því sem getur bjargað heiminum. Hann vinnur gegn fordómum, þröngsýni og dómhörku en ýtir undir víðsýni, umburðarlyndi, mildi og skilning.“