Úti hvíslar golan

Forsíða kápu bókarinnar

Sextugur smiður tekur að sér húsbyggingu í átthögum föður síns á Bakka í Arnarfirði. Hann ákveður að nota tækifærið til að leysa gátuna um Lappa, hundinn sem beið á ströndinni og hvarf svo sporlaust. Gamall maður opnar sálu sína um bitur en sjálfsköpuð örlög sín og ástkonu sinnar, baráttu við feðraveldið og skugga fortíðar.

Þessar tvær fjalir neglast saman undir vestfirskri sól og tilliti suðrænna augna í spennandi og ljúfri fléttu með óvæntum snúningi.