Úti hvíslar golan
Sextugur smiður tekur að sér húsbyggingu í átthögum föður síns á Bakka í Arnarfirði. Hann ákveður að nota tækifærið til að leysa gátuna um Lappa, hundinn sem beið á ströndinni og hvarf svo sporlaust. Gamall maður opnar sálu sína um bitur en sjálfsköpuð örlög sín og ástkonu sinnar, baráttu við feðraveldið og skugga fortíðar.