Vakir þú?

Forsíða kápu bókarinnar

Elskendur fá skelfileg tíðindi sem rekur þá í afdrifaríkt ferðalag, þar sem tekist er á um líf, dauða, ást og ofbeldi. Öldum síðar bíður maður í Vesturbænum eftir pípara, hann er ásóttur af hugsunum og finnur að eitthvað er í vændum. Samtímaverk byggt á ævi frægustu persónu sögunnar, uppgjör við guð, menn og það fegursta og versta í okkur sjálfum.

Lengri texti:

Nú breytist allt.

Barið er að dyrum um heita sumarnótt og atlot elskenda trufluð með skelfilegum tíðindum; bróðir konunnar hefur verið myrtur. Fregnin rekur hana og elskhuga hennar af stað í afdrifaríkasta ferðalag veraldarsögunnar, þar sem tekist er á um líf og dauða, ást og ofbeldi, og vilja mannsins andspænis guði.

Mörgum öldum síðar bíður maður í fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur eftir pípulagningamanni til að skipta um klósett. Hann er ásóttur af minningum og hugsunum um kærleikann og syndina; nágrannar hans eiga erindi við hann, kirkjufeðurnir sækja að honum og í Airbnb-íbúðinni handan götunnar bíða Adam og Eva eftir svari Útlendingastofnunar við hælisumsókn þeirra. En margt getur gerst, dánir menn lifnað við, heitavatnsrör sprungið og eitthvað hræðilegt er í vændum.

Þetta er skáldsaga úr samtímanum en þó byggð á ævi frægustu persónu mannkynssögunnar, uppgjör við guð og menn, en líka það fegursta og versta í okkur sjálfum.

„Við lestur sumra bóka vaknar eitthvað innra með manni sem maður vill í lengstu lög halda vakandi.“

- The New Yorker um Himnaríki og helvíti