Vegamyndir

Forsíða bókarinnar

Vegamyndir geyma úrval ljóða og smáprósa Óskars Árna frá árunum 1990-2015. Höfundur fer með lesandann á flakk um fásótta jafnt sem fjölsótta staði á Íslandi og skissar upp það sem fyrir augu ber – land og fólk sem verður á vegi hans. Haukur Ingvarsson ritar inngang.

Vegamyndir geyma úrval ljóða og smáprósa Óskars Árna frá árunum 1990-2015. Höfundur fer með lesandann á flakk um fásótta jafnt sem fjölsótta staði á Íslandi og skissar upp það sem fyrir augu ber – land og fólk sem verður á vegi hans.

Óskar Árni er flandrari og á ferðalögum sínum fetar hann jafnt huglægar slóðir og raunverulegar, hittir Jónas Hallgrímsson, regnvotan á hamborgarastað á Siglufirði og hlustar á Hank Williams á einmanalegu hótelherbergi á Raufarhöfn.

Vegamyndir er systrabók Reykjavíkurmynda frá árinu 2018, úrval borgarljóða Óskars Árna. Höfundur valdi sjálfur ljóð og smáprósa í báðar bækurnar.

Haukur Ingvarsson ritar inngang að þessu úrvali.