Ævintýri hinna fimm fræknu Vel gert, fimm fræknu / Fimm glíma við ráðgátu
Tvær stuttar og spennandi sögur um hin fimm fræknu eftir Enid Blyton. Frábært tækifæri bæði fyrir yngri lesendur og eldri aðdáendur til að njóta sígildra bókmennta eftir höfundinn. Þessar bækur hafa ekki verið fáanlegar á íslensku áður. Að vanda glíma krakkarnir ásamt Tomma við dularfullar ráðgátur.
Fimm glíma við ráðgátu:
Þegar Georg kemur auga á ljós úti í Fagurey seint að kveldi er það vísbending um að það séu einhverjir úti í eyjunni hennar. Hverjir eru dularfullu þjófarnir – og af hverju eru þeir úti í eyjunni?
Vel gert, fimm fræknu:
Frægur keppnishestur er á búgarði nærri Fagrakoti. En þegar hesturinn fælist og tekur á stökk þurfa hin fimm fræknu að bregðast fljótt við svo hann hlaupist ekki á brott eða slasi sig . . .