Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Veldi hinna illu

Forsíða bókarinnar

Í þessari miklu skáldsögu segir frá útbreiðslu kristni í Rómaveldi á 1. öld þegar misvitrir og spilltir keisarar á borð við Tíberíus, Calígúla og Neró ríktu. Þetta er ein metnaðarfyllsta skáldsaga Anthonys Burgess og býr yfir öllum hans bestu höfundareinkennum – í senn fyndin og sorgleg, blíð og grimm, raunsæ og heimspekileg en umfram allt mannleg.

Því að þetta er ekki síst saga tveggja elskenda sem ná um síðir saman þótt úr ólíkum menningarheimum komi.

Helgi Ingólfsson þýddi.

„Frábær skemmtun. Keisarar og keisraynjur stungin á hol, hoggin í sundur, byrlað eitur eða myrt á annan hrottalegan hátt og fá forvitnileg afbrigði í kynlífi skilin út undan. Og hvað varðar brunann í Róm, fórnardauða kristinna manna í gin ljóna eða gripdeildirnar í musterinu í Jerúsalem – hvílíkt tækifæri sem þetta allt saman gefur hinum hamslausa og fjörmikla stíl Burgess, sem nýtur sín til fulls.“ – Sunday Telegraph

Anthony Burgess (1917–1993) var skáldsagnahöfundur, ljóðskáld, leikskáld, ævisagnahöfundur, tónskáld, málvísindamaður, þýðandi og gagnrýnandi. Hann skrifaði á fjórða tug skáldsagna, 25 bækur almenns efnis, tvær endurminningabækur, samdi þrjár sinfóníur og yfir 250 önnur tónverk auk þúsunda greina, ritgerða og bókadóma. Meðal þekktustu skáldsagna hans eru auk Veldis hinna illu, A Clockwork Orange, Earthly Powers og Enderby-bálkurinn.