Velgjan

Forsíða kápu bókarinnar

Í þessari nafntoguðu skáldsögu segir frá ungum manni, Antoine Roquentin, sem virðist eiga í nokkrum brösum með eigin tilveru. Í áhrifaríkum dagbókarfærslum skráir hann óvægið tilfinningar sínar og skynjanir. Upphaflega átti verkið að heita La Melancholia eða Þunglyndið, en útgefandanum leist ekki á blikuna og stakk upp á Velgjunni í staðinn.

Eftir sem áður er nóg af þunglyndi í verkinu og þá helst af ætt „heimshryggðar“ (Weltschmerz) sem á til að sækja á unga menn sem ekkert amar að, einskonar lúxusdepurð. Fyrir vikið er í Velgjunni að finna margar athuganir sem eiga erindi við æskufólk sem „tíminn vill ei tengja sig við“, þar á meðal er upplifunin fræga sem tengist rótum kastaníutrésins í skemmtigarðinum og hefur fengið áþekkan sess í bókmenntavitund Frakka og magðalenukakan hjá Marcel Proust.

Pétur Gunnarsson íslenskaði og ritaði inngang.