Höfundur: Pétur Gunnarsson

Velgjan

Í þessari nafntoguðu skáldsögu segir frá ungum manni, Antoine Roquentin, sem virðist eiga í nokkrum brösum með eigin tilveru. Í áhrifaríkum dagbókarfærslum skráir hann óvægið tilfinningar sínar og skynjanir. Upphaflega átti verkið að heita La Melancholia eða Þunglyndið, en útgefandanum leist ekki á blikuna og stakk upp á Velgjunni í staðinn.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Játningarnar Jean-Jacques Rousseau Forlagið - Mál og menning Einstakt og stórbrotið bókmenntaverk, sjálfsævisaga eins helsta hugsuðar 18. aldar. Rousseau rekur æviferil sinn, segir frá samferðafólki, gerir grein fyrir hugmyndum sínum og skoðunum og opinberar tilfinningar sínar, óöryggi og ofsóknarkennd í bráðskemmtilegum texta. Pétur Gunnarsson þýðir þetta stórvirki af list og skrifar skýringar og formála.