Vetrarþrestir
Árið er 1969 og Hinrik, ættstór en vinafár ungur maður úr Reykjavík, sem hefur hvorki enst í námi né starfi, reynir fyrir sér í hótelrekstri austur á fjörðum. Hann ræður til sín starfsfólk með það í huga að eignast bæði vin og kærustu – það sem hann helst óskar sér – og fálmar þannig eftir hamingjunni.