Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Við skulum ekki vaka

Forsíða bókarinnar

Thorkild Aske heldur með systur sinni til Íslands að heimsækja aldraðan föður þeirra, Úlf, sem glímir við krabbamein. Úlfur er mikill umhverfissinni og á að baki litríka ævi í endalausu stríði við íslensk stjórnvöld. Á Íslandi sogast Thorkild inn í morðmál sem tengjast umhverfisvernd og virkjanaframkvæmdum – og æsilegir leikar berast um landið.

Æsilegir leikar berast um Reykjavík, Vesturland, Strandir, Norðurland og hálendið. Ískyggilegir draugar úr fortíð íslenskra deilna um umhverfismál láta á sér kræla.

Við skulum ekki vaka er þriðja bókin í magnþrungnum spennusagnaflokki um lögregluforingjann Thorkild Aske sem er af íslenskum ættum. Fyrstu bækurnar tvær – Ég mun sakna þín á morgun og Hittumst í paradís – hafa fengið hinar bestu viðtökur íslenskra lesenda.

Norski rithöfundurinn Heine Bakkeid hefur fengið mikið lof fyrir glæpasögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála.

„Hinn nýi Jo Nesbö.“ – Verdens Gang

„Æðisleg bók ... Frábær og hrikalega spennandi glæpasaga.“ – Titeln

„Áhrifamikil og stórfengleg glæpasaga ... Ekki hægt að leggja hana frá sér ... Sjaldséður snilldarhöfundur ... Mjög vel skrifuð ... Ískaldur hrollurinn hríslaðist um mig ...“ – Bygdabladet