Vigdís
Kona verður forseti
Sem forseti heillaði Vigdís Finnbogadóttir bæði landa sína og hálfa heimsbyggðina með framkomu sinni og hlýju viðmóti. Hér er fjallað um uppvöxt hennar og fjölskyldu, mótunaröfl og þau áföll sem á henni dundu áður en hún tók við embætti. Einstæð og margslungin mynd af brautryðjandanum Vigdísi, sorgum hennar og sigrum. Ný og endurskoðuð útgáfa.