Vikuspá

Sögur á einföldu máli

Forsíða kápu bókarinnar

Vikuspá geymir áttatíu og sex stuttar og aðgengilegar frásagnir þar sem ólíkar atvinnugreinar eru kynntar. Hér er leikið með þá íslensku þjóðtrú að það geti haft áhrif á hvað barn taki sér fyrir hendur í framtíðinni á hvaða vikudegi það fæðist. Sögurnar varpa ljósi á fegurð mannflórunnar og mikilvægi þess að þroskast og breytast í takt við tímann.

Vikuspá er sjálfstætt framhald af Árstíðum og Dagatali sem hafa notið mikilla vinsælda og verið kenndar víða á Íslandi sem og erlendis. Textarnir eru fjölbreyttir hvað varðar efnistök, form og stíl og flokkaðir eftir getustigi í samráði við sérfræðinga. Þar að auki fylgir viðauki með margskonar fróðleik um land og þjóð. Bókin nýtist jafnt við kennslu sem og til yndislestrar.