Yesteryear
Þar sem fortíðin mætir raunveruleikanum
Natalie lifir fullkomnu, hefðbundnu lífi á býlinu Yesteryear – og milljónir fylgjenda eru grænir af öfund. Hvað með það þótt barnfóstrur og framleiðendur leynist á bak við tjöldin?
Kolsvört kómedía sem tekst á við hefðir, frægð, trú og það hvernig kvenleikinn hefur verið mótaður og sviðsettur í gegnum tíðina.
„Stærsta bók ársins“ / The New Yorker
Einn daginn vaknar Natalie í undarlegri og skelfilegri útgáfu af veruleikanum. Heimilið, eiginmaðurinn, börnin – allt er kunnuglegt en samt ekki eins og það á að vera. Er þetta hrekkur? Raunveruleikaþáttur? Prófraun frá Guði?
Natalie veit aðeins tvennt með vissu: Þetta er ekki fullkomna lífið hennar og hún verður að komast undan – sama hvað það kostar.
CARO CLAIRE BURKE sló samstundis í gegn þegar Yesteryear kom út vorið 2026. Þessi fyrsta skáldsaga hennar varð metsölubók á svipstundu og hefur selst í milljónum eintaka um allan heim.