Yfirrétturinn á Íslandi: Dómar og skjöl VI. 1747–1758
Fjölbreytt mál komu fyrir réttinn en þar á meðal eru vörusvik kaupmanna, fjárnám á heimili sýslumanns og spilling embættismanna. Systkinin Sunnefa og Jón Jónsbörn ásökuðu sýslumanninn Hans Wium um að hafa dæmt sig til dauða fyrir sifjaspell vegna barns sem hann hefði sjálfur getið Sunnefu í varðhaldi. Skjöl málsins birtast hér í fyrsta sinn.
Yfirrétturinn var æðsti áfrýjunardómstóll innanlands og þegar dómsmál voru tekin fyrir þar lá oftar en ekki áralöng óvild að baki málaferlunum. Auk þess að vera vitnisburður um ýmsar hliðar á lífi og kjörum almennings eru skjöl Yfirréttarins heimild um þekkta einstaklinga úr Íslandssögunni og innbyrðis átök æðstu embættismanna landsins.
Alþingi styrkti útgáfuna.