Höfundur: Ragnhildur Hólmgeirsdóttir

Yfirrétturinn á Íslandi: Dómar og skjöl III. 1716‒1732

Mál sem komu fyrir dóminn voru margvísleg. Tvær konur voru sakaðar um að deyða börn sín í fæðingu og dæmdar til dauða. Snæbjörn Pálsson uppnefndi kaupmanninn í Dýrafirði Lúsa-Pétur sem dró mikinn dilk á eftir sér. Auk þess birtast hér ásakanir um falskt þingsvitni og embættismissi sýslumanns, deilur um reka, þjófnaðarmál og drykkjulæti í kirkju.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Villueyjar Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Björt bókaútgáfa - Bókabeitan Á Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið. Frá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn sem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni. Eftir það breytist allt.