Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Yfirrétturinn á Íslandi: Dómar og skjöl IV. 1733–1741

Forsíða kápu bókarinnar

Fjölbreytt mál komu fyrir réttinn en þar á meðal eru morð, spilling embættismanna, ærumeiðingar og sifjaspell. Fyrrverandi sýslumaður neyddist til að hafast sumarlangt við í skemmu í Húnavatnssýslu og ungur maður úr sömu sýslu var gerður arflaus fyrir leti. Skjöl Yfirréttarins veita einstaka innsýn í íslenskt samfélag á 18. öld.

Fjölbreytt mál komu fyrir réttinn en þar á meðal eru morð, spilling embættismanna, ærumeiðingar og sifjaspell. Fyrrverandi sýslumaður neyddist til að hafast sumarlangt við í skemmu í Húnavatnssýslu og ungur maður úr sömu sýslu var gerður arflaus fyrir leti. Skjöl Yfirréttarins veita einstaka innsýn í íslenskt samfélag á 18. öld. Yfirrétturinn var æðsti áfrýjunardómstóll innanlands og þegar dómsmál voru tekin þar fyrir lá oftar en ekki áralöng óvild að baki málaferlunum. Auk þess að vera vitnisburður um ýmsar hliðar á lífi almennings eru skjöl Yfirréttarins heimild um þekkta einstaklinga úr Íslandssögunni á borð við Skúla Magnússon og innbyrðis átök æðstu embættismanna landsins.