Ef Rússar sigra
Sviðsmynd
Í þessari vel ígrunduðu bók dregur þýski öryggisfræðingurinn Carlo Masala upp sviðsmynd þar sem sigur Rússa í Úkraínu leiðir til nýs hættuástands í Evrópu. Á raunsæjan hátt sýnir höfundur hvernig atburðarás sem kann að virðast ólíkleg getur á skömmum tíma breytt öryggisskipan Evrópu og samskiptum vestrænna þjóða innan NATO.