Höfundur: Eliza Reid

Og svo varð ég forsetafrú

Höfundur rifjar upp eftirminnilegan tíma sem forsetafrú Íslands og veitir lesendum innsýn í heim þar sem formlegheitin ráða ríkjum og opinberar heimsóknir og móttökur eru stór hluti af starfinu. Einnig segir Eliza frá uppvexti sínum í Kanada, námsárunum, ferðalögum og hvernig það var að flytja til Íslands og verða útivinnandi margra barna móðir.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Diplómati deyr Eliza Reid Forlagið - Vaka-Helgafell Fyrsta skáldsaga Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrúar, er spennandi og listilega fléttuð glæpasaga þar sem leyndarmálin eru afhjúpuð hvert af öðru. Morð er framið í miðjum hátíðarkvöldverði kanadískra diplómata í Vestmannaeyjum. Ýmsir liggja undir grun og sendiherrafrúin ákveður að rannsaka málið upp á eigin spýtur.
Sprakkar Kvenkyns skörungar Íslands og hvernig þær leitast við að breyta heiminum Eliza Reid Forlagið - JPV útgáfa Eliza Reid hefur unnið við blaðamennsku, ritstjórn og ritstörf og varð árið 2016 forsetafrú. Hér fjallar hún um þá stöðu sína og segir frá sjálfri sér. Þær sögur fléttast saman við frásagnir viðmælenda hennar, sem eru konur á ólíkum sviðum þjóðlífsins, og rifjaðar eru upp sögur af nokkrum þekktum kvenskörungum.