Höfundur: Ilon Wikland

Ég vil ekki fara að hátta

Lassi er fimm ára og vill aldrei fara að hátta. Þegar mamma hans reynir að koma honum í rúmið orgar hann bara og ólmast. Kvöld eitt heimsækir hann Lottu gömlu. Hún leyfir honum að prófa gleraugun sín – og það eru sko engin venjuleg gleraugu! Með þeim getur hann nefnilega fylgst með háttatíma dýranna. Sígild saga sem er nú loks fáanleg á ný.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Ég vil líka eignast systkin Astrid Lindgren Forlagið - Mál og menning Pétur langar í lítið systkini. Aldrei þessu vant þarf hann ekki að rella lengi. En þegar Lena litla fæðist er Pétur ekki alveg viss lengur. Hann hefði kannski frekar átt að biðja um þríhjól. Yndisleg saga sem hefur skemmt og yljað stækkandi fjölskyldum í áratugi. Einstakar myndir Ilon Wikland gæða frásögnina töfrum.
Víst kann Lotta að hjóla Astrid Lindgren Forlagið - Mál og menning Lotta kann víst að hjóla - þegar enginn sér hana! Gallinn er bara sá að hún á ekkert hjól og mamma og pabbi halda að hún geti látið gamla þríhjólið duga í heilt ár í viðbót. Þá grípur Lotta til sinna ráða.