Ritröð Árnastofnunar nr.124 Séra Bjarni Gissurarson í Þingmúla
Ævi hans og kveðskapur
Bjarni Gissurarson (1621–1712) var prestur í Þingmúla á Skriðdal. Hann var náfrændi sr. Stefáns Ólafssonar í Vallanesi og gott skáld eins og hann, þótt kveðskapur Bjarna sé minna þekktur. Bjarni orti og þýddi bæði trúarleg kvæði og veraldleg.