Ritröð Árnastofnunar nr.124 Séra Bjarni Gissurarson í Þingmúla. Ævi hans og kveðskapur.
Um ævi og kveðskap Bjarna Gissurarsonar.
Bjarni Gissurarson (1621–1712) var prestur í Þingmúla á Skriðdal. Hann var náfrændi sr. Stefáns Ólafssonar í Vallanesi og gott skáld eins og hann, þótt kveðskapur Bjarna sé minna þekktur. Bjarni orti og þýddi bæði trúarleg kvæði og veraldleg. Hann samdi fjölda ljóðabréfa sem hann sendi vinum og ættingjum með fréttum og oft gamansömum lýsingum á daglegu lífi fjölskyldunnar. Náttúran er mikilvægur þáttur í kvæðum Bjarna, hann yrkir um sólina sem uppsprettu alls góðs, um kosti landsins, en einnig um erfiða vetur og harðindi.
Fáir hafa rannsakað ævi og kveðskap Bjarna Gissurarsonar jafn vandlega og Jón M. Samsonarson (1931–2010) sem er höfundur þessarar bókar. Hún er ítarleg rannsókn á handritunum sem varðveita kveðskap Bjarna, umfjöllun um ævi hans og störf og síðast en ekki síst bókmenntaleg greining á kveðskap Bjarna. Bók þessi er mikilvægt framlag til rannsókna á íslenskum kveðskap á sautjándu öld og veitir auk þess áhugaverða innsýn í lífsbaráttu fólks á fyrri öldum.