Svartanótt
Rósa flytur ásamt írskum eiginmanni sínum í frumskóginn á Kyrrahafsströnd Kólumbíu. Þegar eiginmaðurinn tekur sér ferð á hendur til næstu borgar er Rósa ein í hálfköruðu, hurðarlausu húsi. Regnskógarparadísin við ströndina breytist smám saman í martröð því ógnir leynast á hverju strái: hættuleg dýr, háskalegur gróður og vafasamir nágrannar.