Höfundur: Ruth Kvarnström-Jones

Kvenskörungar á Grand Hôtel

Grand Hôtel í hjarta Stokkhólms stendur á tímamótum rétt eins og konurnar sem þar starfa. Saman takast þær á við ástir, svik og samfélagslegar skorður en þegar leyndarmál fortíðarinnar koma upp á yfirborðið reynir á traustið og í ljós kemur hverju þær eru tilbúnar að fórna. Fyrsta bókin í grípandi bókaflokki sem hefur farið sigurför um Evrópu.