Rípa
The Troll-Girl
Rípa sem fyrst kom út árið 2018 er nú komin út á ensku. Tröllastelpan Rípa býr í helli uppi í fjöllum ásamt foreldrum sínum, afa, ömmu og mörgum bræðrum. Í dalnum er lítið afskekkt þorp og þar býr mannsbarnið Lóa. Dag einn þegar Rípa fer lengra niður fjallið en áður hittir hún Lóu, sem hefur farið hærra upp í fjallið en hún má.