Höfundur: Sigrún Hildur Kristjánsdóttir

Þér eruð ekki neitt, fröken Sigríður!

Lífshlaup Sigríðar Ólafsdóttur Meyburg

Frá fátæku heimili á Ströndum til Grænlands, Bandaríkjanna og ferðalaga um heiminn – Sigríður Ólafsdóttir Meyburg lét aldrei mótlæti ráða för. Faðir hennar fórst með togaranum Jóni forseta þegar hún var barn og í kjölfarið leystist heimilið upp. Þetta er mögnuð saga af konu sem fór sínar eigin leiðir og sjaldan er rómantíkin langt undan.