Höfundur: Sigþrúður Gunnarsdóttir

Íslensku tröllabörnin

Tröll hafa byggt Ísland frá því löngu áður en menn settust hér að. Hér er hulunni svipt af lífsháttum tröllanna með sérstakri áherslu á litla tröllafólkið - sem er samt ekki svo lítið! Í þessari myndríku bók vekur Brian Pilkington magnaðan hulduheim til lífsins á sinn tröllskemmtilega og nýstárlega hátt. Einnig fáanleg á ensku.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Gráðuga lirfan Eric Carle Forlagið - Mál og menning Gráðuga lirfan er sígild bandarísk barnabók sem hefur farið sigurför um heiminn. Gráðuga lirfan étur allt sem fyrir verður enda þarf hún að stækka mikið áður en hún getur orðið fallegt fiðrildi. Komið er inn á tölur og daga vikunnar, og frumleg hönnun og fínlegur húmor gera bókina einstaka í sinni röð.