Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

500 mílur frá mér til þín

Forsíða bókarinnar

Alyssa Westcott kallar ekki allt ömmu sína, enda hefur hún unnið lengi sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku í London. Þegar hún verður vitni að hræðilegu banaslysi, sem hún nær ekki að henda reiður á, hrynur tilvera hennar.

Fimm hundruð mílum norðar starfar Cormac sem hjúkrunarfræðingur í rólega þorpinu Kirrinfief þar sem ung stúlka bíður eftir nýju hjarta. Þegar þrýst er á Alyssu að hafa vistaskipti við Cormac í Skotlandi lætur hún tilleiðast í von um að ná aftur stjórn á lífi sínu. Henni þykir þorpsbúar hafa fullmikinn áhuga á lífi hennar - og þeim finnst hún aðeins of þurr á manninn. Í hennar stað í London kemur Cormac sem finnst tilhugsunin um líf í stórborginni yfirþyrmandi. Þau kynnast smám saman í samskiptum á netinu um sjúklingana. Hugurinn ber mann hálfa leið en getur ástin kviknað í hjörtum sem 500 mílur skilja að?

Sjálfstætt framhald af Litlu bókabúðinni í hálöndunum og Litlu bókabúðinni við vatnið eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan.