Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Ævintýri fyrir ofurhetjur - Morðtrúðarnir

Forsíða kápu bókarinnar

Glæný sería með Rauðu grímunni! Dularfullir atburðir eiga sér stað á Rósahæð! Nótt eftir nótt brjótast hræðilegir trúðar inn hjá fólki. Þeir binda fjölskyldurnar og líma fyrir munninn á þeim en yfirgefa svo staðinn án þess að stela neinu. Innbrotsþjófarnir eru kallaðir „morðtrúðarnir.“

Glæný sería með Rauðu grímunni!

Dularfullir atburðir eiga sér stað á Rósahæð! Nótt eftir nótt brjótast hræðilegir trúðar inn hjá fólki. Þeir binda fjölskyldurnar og líma fyrir munninn á þeim en yfirgefa svo staðinn án þess að stela neinu. Bráðlega er allur bærinn kominn í uppnám og til að bæta gráu ofan á svart eru innbrotsþjófarnir kallaðir „morðtrúðar“ í dagblaðinu. Hvað er eiginlega í gangi? Rauða gríman og hinar ofurhetjurnar ætla að komast að því …

Ævintýri fyrir ofurhetjur er bókaflokkur fyrir aðeins eldri aðdáendur ofurhetjanna, hraðari og meira taugatrekkjandi – fullkomin afþreying fyrir þau sem vilja fá meira af ofurhetjunum!