Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Af hverju báðu þau ekki Evans?

Forsíða kápu bókarinnar

Var það slys að ókunnugur maður féll fram af klettabrún og dó? Eða bjó eitthvað ískyggilegt að baki? Grunsemdir vakna í huga glaðværa vinaparsins, Bobbys og Francis, sérstaklega í ljósi þess hvað maðurinn sagði í andarslitrunum: „Af hverju báðu þau ekki Evans?“ Hver var Evans? Hvað átti maðurinn eiginlega við?

Og hvað var hann að gera á þessum slóðum? Þau ákveða að reyna að svara þessum spurningum. En þau verða þess fljótt áskynja að það er hættulegt að spyrja í tengslum við þetta dauðsfall. Brátt eru þau bæði í bráðri lífshættu ...

„Saga sem skemmtir og ertir en reynir aldrei á þolrif lesandans eða skynsemi.“

Times Literary Supplement

„Maður fær aldrei nóg af snilldarlegri og banvænni spennu Christie.“

Entertainment Weekly

„Agatha Christie er ódauðleg.“

Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni